„Forgangsröð aðgerða“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Enginn munur)
|
Nýjasta útgáfa síðan 19. maí 2019 kl. 21:59
Höfundur Sigrún Eugenio Jónsdóttir
Námsefni þetta er hægt að nýta sér í eldri bekkjum grunnskólans auk grunnáfanga framhaldsskóla í stærðfræði. Námsefni kennir helstu reglur sem gilda um forgangsröð aðgerða.
Forgangsröð aðgerða
Í þessari wikibók er ætlunin að skoða helstu reglur sem gilda í forgangsröðun aðgerða í algebru. Þessar aðgerðir gilda janfn um tölustafi og bókstafi.
Stærðartákn og stæða
Þegar tölur og/eða bókstafir eru tengdar með reikniaðgerðum (+,-,*,/) er talað um stærðartákn, sem oft er nefnt stæða (en. algebraic epression)
Reglur
1. Fyrst er reiknað úr öllum svigum (ef þeir eru fyrir hendi).
2. Reikna síðan veldi og draga kvaðratrót (ef slíkt er fyrir hendi).
3. Margfalda og deila.
4. Leggja saman og draga frá.
Dæmi
| Expression | Jafna | Reikniaðgerð |
|---|---|---|
| 4 × 2 + 1 | = 4 × 2 + 1 | Margföldun |
| = 8 + 1 | Samlagning | |
| = 9 | ||
| 12 - 9 ÷ 3 | = 12 - 9 ÷ 3 | Deiling |
| = 12 - 3 | Frádráttur | |
| = 9 | ||
| 3 + 12 ÷ (5 - 2) | = 3 + 12 ÷ (5 - 2) | Svigar |
| = 3 + 12 ÷ 3 | Deiling | |
| = 3 + 4 | Samlagning | |
| = 7 | ||
| 7 × 10 - (2 × 4)2 | = 7 × 10 - (2 × 4)2 | Svigar |
| = 7 × 10 - 82 | Veldi | |
| = 7 × 10 - 64 | Margföldun | |
| = 70 - 64 | Frádráttur | |
| = 6 |